Liðin á móti Val og KR

Á morgun spilar A-og B-lið við Val á Ásvöllum. 

A-lið leikur kl. 17:00 - mæting kl. 16:15 (Birkir, Ísak B, Ísak J, Kristinn P, Karl P, Andri Fannar, Bjartur, Orri, Elli, Pétur, Karl M, Sindri og Óskar).

B-lið leikur kl. 18:30 - mæting kl. 17:50 (Anton, Þórir E, Matti, Maggi G, Daníel, Sævar, Kristinn Ó, Andri Freyr, Andri Sc, Magnús S, Jökull, Kaleb, Aron Freyr Marelsson og Aron Hólm).  

 

C-lið leikur á föstudag kl. 17:00 mæting kl. 16:15 (Bergur, Alexander, Aron Freyr Marelsson, Aron Hólm, Rafael, Óliver, Jóhann T, Tómas, Kristján Bragi, Aron Freyr, Magnús Stef, Þórir E, Daníel, Kaleb, Davíð og Fannar B).  

Æfing hjá C-liði á fimmtudag kl. 14:45.

 

(Breki, Doddi, Þórir J, Aron A, Hjörtur, Sindri M og Rikki hafa ekki látið vita af sér en geta haft samband við þjálfara)

 

kv. Þjálfarar 


Mæta með 3. fl. í dag.

Við ætlum að fá 8 stráka til að fara á 3. fl. æfingu kl 16:15 í dag þriðjudag. Kalli M,Andri Fannar,Sindri,Kiddi P,Ísak J,Orri, Kalli P og Andri Sc.

kv Freyr,Gústi og Árni 


Spilað við Val og KR í vikunni

Íslandsmótið byrjar aftur í vikunni eftir smá frí. Spilað verður á fimmtudag á Ásvöllum  í A og B liðum og á föstudag við KR í C liðum. Æfing á morgun kl 14:45 en þeir sem eru í unglingavinnunni geta mætt með 3. flokki kl 16:15.

kv Freyr,Gústi og Árni 


Sigur á móti U-15 hjá Vildbjerg 3-0

Morgunmaturinn var á sínum stað kl 09:00 og eftir hann var farið í gönguferð. Þar sem farið var í klappleik sem gengur út á það að sá sem gerir mistök þarf að leika fyrir hópinn. Mikið hlegið og góður andi í hópnum. Efir hádegismat var fundur þar sem farið var yfir leikinn og byrjunarlið tilkynnt. Leikurinn við U-15 hjá heimamönnum var virkilega góður hjá Haukastrákum. Kalli M sem hvíldur var í fyrri leiknum skoraði með góðu langskoti við mikin fögnuð Haukamanna. Elli skorað síðan gott mark eftir frábæra stungusendingu frá Krisni Óla sem byrjaði inná. Staðan í hálfleik var 2-0 og Haukar að spila flottan fótbolta. Mikil barátta var í seiinihálfleik og allir leikmenn að skila sínu í liðsheildinni. Haukar bættu einu marki við í seinni en markið skoraði Sindri eftir frábært einstaklingsframtak þar sem hann plataði báða hafsentana upp úr skónum og komst einn innfyrir og kláraði færið og innsiglaði 3-0 sigur. Allir ánægðir og nú er framundan í kvöld að horfa allir saman á Hauka-KA á sporttv í beinni á stórum skjá. Eftir leik fara allir að pakka fyrir heimferð á morgun. Frábæri ferð fer nú senn að ljúka.

Rólegur dagur í dag

Það var rólegur dagur í dag í Vildbjerg  morgunmatur æfing, hádegismatur, billjadmót,æfing,sund,kvöldmatur og fyrirlestur hjá þjálfurum. Það bar helst til tíðinda að Sverrir Þór sonur Freys vann billjardmótið hjá strákunum og Binni hjá farastjórum. Einnig útskrifaði Binni Pétur við morgunverðarborðið í smörebrauðinu, von er á fleirum útskriftum á morgun. Framundan erfiður leikur á morgun.

Fjölnir2-Haukar fimmtudag kl17:00

Mæting á gerfigrasið við Egilshöll kl 16:15 sama lið og í síðasta leik.

kv Árni 


Rosafjör í Djurs-summerland

Það er erfitt að toppa Binna við morgunverðaborðið í smörebrauðinu hann hreinlega rúllar öllum upp með skreyttu brauðinu,með tómötum,osti,papriku og allskynns góðgæti. Það eru miklar framfarir hjá okkur hinum að sögn Binna.

 Eftir morgunmat var haldið í tveggja tíma rútuferð í skemmtigarðinn. Andri Freyr var veikur og komst því miður ekki með og var Pétur hjá honum og er hann allur að koma til. Það var rétt svo að fimm tímar dugðu í garðinum því líkt var fjörið. Margir fóru oft í sömutækin og var mikið stuð bæði hjá drengjunum og þeim fullorðnu. Lengsti rússibaninn í Danmörku (nýr 2013) og sá hraðasti var vinsælastur 85km hraði. Það voru þreyttir ferðalangar sem lentu rétt fyrir sjö við hotelið og fóru beint í hakke buff og ís og ávexti. Kvöldvaka var á sínum stað og voru sýndar myndir úr síðasta leik sem Markús tók upp og farið var í teiknikeppni farastjórar á móti drengjunum og sigruðu farastjórarnir naumlega. Nú er að færast ró yfir drengina og framundan tvær æfingar á morgun.


Lestar ferð í næsta bæ

Í dag voru tvær æfingar og sú fyrri í rólegri kantinum eftir leikinn í gær en á seinni æfingunni var tekið meira á. Eftir hádegismat var farið með lest (sumir að fara í lest í fyrsta skipti)í næsta bæ og farið í Kringluna á staðnum og sumir fóru í HM meðan aðrir gerð eitthvað annað. Á leiðinni heim var farið á Macdonalds og vel tekið á því hjá strákunum. Það voru sumir þungir á seinni æfingunni eftir ferðina á M.D. Eftir kvöldmat var horft á Danmörk-Armeníu í sjónvarpinu 0-4 Danir teknir í bakaríið. Spenna í strákunum fyrir morgundeginum en þá verður farið í skemmtigarðinn í Djus-summerland og engin æfing.


Jafntefli við heimamenn í Vildbjerg

Vaknað snemma í morgunmat og eftir hann var tekinn göngutúr um miðbæinn.Ekki mikið að sjá en strákarnir fóru í gamla kirkju og báðu um góð úrslit í dag.Hádegismaturinn var á sínum stað og eru allir mjög ánægðir með hann. Eftir mat fóru farastjórar í sólbað en strákarnir áttu að forðast sólina fram yfir leik. 

Leikurinn: spilað við U-14 hjá Vildbjerg en næsti leikur á föstudag verður við U-15 hjá þeim.

Jafn og skemmtilegur leikur mikill spenna hjá okkar strákum og danska liðið vel spilandi og það voru þeir sem komust yfir 1-0 þegar senterinn slapp einn í gegn. Haukastrákar voru ekki lengi að jafna en það var Elli sem setti gott innanfótarskot í fjærhornið. Dönskustrákarnir komust aftur yfir með góðu skoti yfir Birki í markinu. Rétt fyrir hálfleik jafnaði Pétur eftir góða sókn og frábæran undirbúning frá Ella. Seinni hálfleikurinn var spennandi eins og sá fyrri en aftur komust danir yfir nú með skoti úr teignum. Margar skiptingar voru í leiknum og spiluðu allir nema Kalli M sem var hvíldur vegna meiðsla. Margir að leika vel sem komu inná og í einni sókninni eftir gott spil milli manna jafnaði Elli. Nokkuð sanngjarnt en Haukar áttu fleiri færi til að skora en danir. Besti leikmaðurinn í þessum leik var Haukamaðurinn Ísak Jónsson.

Eftir leik var farið í sund og síðan borðaður kvöldmatur, og nú er bara rólegt framundan og tvær æfingar á morgun. 


Frábær dagur í Vildbjerg

Fyrsta nóttin á hótelinu var í þremur 10 manna herbergjum og fór vel um alla. Eftir morgunmat var farið á æfingu og veðrið nokkuð gott en ekki sól. Hádegismaturinn mjög góður og eftir hann var farið í að færa sig í fjögura manna herbergin og erum við allir í sömu álmu. Fyrirlestur um varnartaktík og sóknartaktík var á dagskrá hjá þjálfurum um áður en farið var á seinni æfinguna. Þar var farið í gegnum sóknar og varnartaktík á vellinum. Þegar heim var komið á hótelið var farið í sund og höfðum við hana útaf fyrir okkur, rennibraut,pottar og 25m laug.Kvöldmaturinn frábær og vel tekið til matar hjá strákunum. Nú er ný búinn fyrsta kvöldskemmtunin en haldin var spurninga keppni milli herbergja og sigurvegar urðu þeir sem eru í herbergi 4. Nú eru menn að koma sér í háttinn og undirbúa sig fyrir leikinn á morgunn sem er við U-14 liðið hjá heimamönnum í Vildberg. 

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband