Sigur á móti U-15 hjá Vildbjerg 3-0

Morgunmaturinn var á sínum stað kl 09:00 og eftir hann var farið í gönguferð. Þar sem farið var í klappleik sem gengur út á það að sá sem gerir mistök þarf að leika fyrir hópinn. Mikið hlegið og góður andi í hópnum. Efir hádegismat var fundur þar sem farið var yfir leikinn og byrjunarlið tilkynnt. Leikurinn við U-15 hjá heimamönnum var virkilega góður hjá Haukastrákum. Kalli M sem hvíldur var í fyrri leiknum skoraði með góðu langskoti við mikin fögnuð Haukamanna. Elli skorað síðan gott mark eftir frábæra stungusendingu frá Krisni Óla sem byrjaði inná. Staðan í hálfleik var 2-0 og Haukar að spila flottan fótbolta. Mikil barátta var í seiinihálfleik og allir leikmenn að skila sínu í liðsheildinni. Haukar bættu einu marki við í seinni en markið skoraði Sindri eftir frábært einstaklingsframtak þar sem hann plataði báða hafsentana upp úr skónum og komst einn innfyrir og kláraði færið og innsiglaði 3-0 sigur. Allir ánægðir og nú er framundan í kvöld að horfa allir saman á Hauka-KA á sporttv í beinni á stórum skjá. Eftir leik fara allir að pakka fyrir heimferð á morgun. Frábæri ferð fer nú senn að ljúka.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vel gert Hauka strákar!

Góða ferð heim.

Ólöf Þóra mamma Breka Þór (IP-tala skráð) 14.6.2013 kl. 21:00

2 identicon

Gott að gekk vel ,góða ferð heim:)

Heiða mamma Ella (IP-tala skráð) 14.6.2013 kl. 22:13

3 identicon

Takk fyrir frábæra ferð strákar ;)

Magnús Dagur (IP-tala skráð) 15.6.2013 kl. 20:08

4 identicon

kemst ekki a eafingu i dag

isak B (IP-tala skráð) 18.6.2013 kl. 13:40

5 identicon

kemst ekki a eafingu i dag er rosa slappur

isak B (IP-tala skráð) 20.6.2013 kl. 12:53

6 identicon

Er að fara til Akureyrar 23 júní þannig að ég kemst ekki í leikinn á móti kr 2 :(

Ríkarður (IP-tala skráð) 20.6.2013 kl. 16:27

7 identicon

kemst ekki á æfingu mán,þrið og mið er í sumarbústað en kem á leikinn á fimtudag.

Hjörtur Ingi (IP-tala skráð) 22.6.2013 kl. 14:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband