Tillaga að æfingu um helgina

(ef þið komist á einhvern völl)

Upphitun: 10 mín

Æfing 1.

Hreyfiteygjur

Skokkað frá endalínu að vítateig.

Hælar í rass,hnélyftur,snúa höndum,valhopp,krossa fætur,hliðarskref,varnarskref..... 

Æfing 2.   10 mín

Fyrirbyggjandi æfingar.

Vera fyrir framan línu á vellinum.

Hoppa yfir línuna og gera 10 x:

-Jafnfættis og lenda á öðrum fæti

-hliðar á hægri

-hliðar á vinstri

-framstig

-hliðarstig

-hnébeygja

 

Æfing 3: 15 mín

Rekjaboltan frá endalínu að vítateig.

t.d.

-með rist

-innanfótar hægri,vinstri

-taka snúninga á leiðinni

-rekja hann á hlið draga boltan vinstri,hægri,

-aftur á bak

-og eitthvað sem þér dettur í hug

Æfing 4.

Sendingar 25 metrar á milli

-fastar innanfótar

-háar með rist

-láta boltann skoppa fyrir framan ykkur og senda háan yfir.

Niðurlag:

Teygja vel og ræða saman um æfinguna en virða tveggja metra regluna.


Slóðinn og tölurnar

Getið notað annað hvort.

URL

https://us04web.zoom.us/j/74472801732?pwd=TFY4WGgrWFkyL3lvMjlWSzFGVDdTZz09

 

ID

744 7280 1732

Password

8myWQZ


Spurninga-keppni á föstudag

Það verður spurningakeppni Kahoot á föstudag á Zoom kl 16:00. Þá verður að vera í tölvu og með símann til að svara. Eftir að Zoom fundurinn byrjar og við förum í spurningarnar þá þurfið þið að fara á kahoot.it (í símanum eða ipat) og stimpla inn númerið sem kemur á skjáinn og merkja liðið þitt með nafni.


Zoom upplýsingar

linkur á Zoom

https://us04web.zoom.us/j/71618811468?pwd=d1VxaGE1cHNUZncyc3VJeTdaZThpUT09

 

 


Æfing á miðvikudag

Æfingin á miðvikudag er skokk framhjá 30 ljósastaurum og til baka nema á leiðinni heim á að taka hraðaaukningar á milli ljósastaura. Halda svo bolta á lofti ef þið eruð með bolta. Teygja svo vel á eftir og taka styrktaræfingar af videóinu á blogginu.


Fyrirlestur

Ætlum að að hafa fyrirlestur á miðvikudag 4. nóv kl 17:00 þar sem allir í 4. flokk geta verið með. Þið farið inn á zoom.us og þar inn á join a meeting og þar eruð þið beðnir um ID numer(níu stafir  og password. Ég set þessi númer inn á bloggið 16:56 á miðvikudag. Eftir að þið eruð búnir að setja tölurnar inn eruð þið með á fundinum.

Kv Freyr og Einar


Tölurnar fyrir fundin

77486746040

password:

x5NCzT

ATH. Stafir verða að vera réttir, stór þar sem er stór og lítil þar sem er lítill.

kv Freyr


Æfingar fyrir hraða


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband