Errea búningadagur þriðjudaginn 5. des

Þriðjudaginn 5. desember verður haldinn Errea búningadagur á Ásvöllum þar sem knattspyrnuiðkendunum gefst tækifæri á því að máta og velja stærðina á sínum keppnisbúningi sem fylgir með æfingagjöldunum.

Í ár fylgir blái varabúningur félagsins með, en sá þykir einstaklega vel heppnaður í útliti, og því munu Haukar verða bláir á keppnisvellinum á árinu 2018.

Samtímis gefst iðkendum tækifæri til þess að versla annan æfinga- og keppnisbúnað frá Errea á góðum kjörum.

Foreldrar iðkenda í 8. - 5. flokki mæta milli kl. 16-18.

Foreldrar iðkenda í 4. - 2. flokki mæta milli kl. 18-20.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Æj sá of seint að æfingin væri kl 12 - Óskar missti því af henni

Guðrún Þórdís Ingólfsdóttir (IP-tala skráð) 2.12.2017 kl. 13:02

2 identicon

Rökkvi Rafn kemur seint i dag, er að fara í myndatöku. 

Agga (IP-tala skráð) 7.12.2017 kl. 09:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband