Kæra Haukafólk


Vinsamlega lesið vel eftirfarandi texta:

Eins og flestum er eflaust kunnugt um mun íþróttastarf barna á leik- og
grunnskólaaldri hefjast af krafti þann 4. maí. Íþróttastarf fullorðinna
hefst einnig þann dag en með takmörkunum. Við hlökkum til að taka á móti
iðkendum okkar á nýjan leik. Æfingatafla flokksins smá breyting

mánudag kl 16:00- miðvikudag kl 16.00 fimmtudag kl 15.00 og laugardag kl 13.30.

 Ný æfingatafla tekur svo gildi eftir
skólaslit grunnskóla og verður hún auglýst fljótlega. Sumarstarfið á
Ásvöllum verður líka auglýst á næstu dögum en það verður með svipuðu
sniði og undanfarin sumur. Við viljum vekja athygli á því að enn miðast
samkomubann við 50 einstaklinga og ávallt skal virða reglu um tvo metra
milli fullorðinna. Við beinum því þeim tilmælum til foreldra og
forráðamanna barna á grunnskólaaldri að mæta EKKI með börnum sínum á
æfingar nema nauðsyn beri til. Telji einhver þörf á því að fylgja barni
sínu skal tilkynna það til viðkomandi þjálfara. Við höldum áfram að
vanda okkur og fara varlega.

Áfram Haukar!


Æfing miðvikud / fimmtudag

Upphitun: 10 mín

Æfing 1.

Tveir saman með einn bolta. Senda á milli fram og til baka þvert á völlinn 8 ferðir.

Æfing 2.   5 mín

Vaxandi hlaup þvert á völlinn upp í 70 % 4 ferðir.Eftir það er hlaup yfir og til baka á 30 sek, gera 4x tvær mín hvíld á milli.

 

Æfing 3.   10 mín

Fyrirbyggjandi æfingar.

Vera fyrir framan endalínu.

Hoppa yfir línuna og gera 10 x:

-Jafnfættis og lenda á öðrum fæti

-hliðar á hægri

-hliðar á vinstri

-framstig

-hliðarstig

-hnébeygja

 

Æfing 4: 15 mín

Tveir saman með einn bolta, senda á milli innanfótar og síðan háar sendingar og enda með fyrirgjafir á hvorn annan. 

Niðurlag:

Teygja vel á eftir.


Æfing í dag mánudag.

Mánudagur/þriðjudagur 27.april

Sérhæft þol.

Upphtun með bolta.

Skokka 4 hringi með bolta.

Síðan er knattrak frá hliðarlínu yfir á hina hliðarlínuna og til baka og aftur yfir og til baka, reyna að ná þessu á 70-80 sek, hvíla í 2. mínútur á milli. Þetta gerum við 4 sinnum.

Næsta er yfir og til baka á 35-40 sek. Ein mínúta hvíld, gerum þetta 8 sinnum.

Leika sér með bolta


Tölurnar

ID 71993574987

pw.5bzTYi

kv Freyr


Keirum þetta í gang

Grunnþol og sérhæftþol

Enginn knattspyrnumaður sem vill ná langt kemst af án þess að hafa gott þol. Þetta þol verður hann að tileinka sér á undirbúningstímabilinu og viðhalda því á keppnistímabilinu.

Þol í knattspyrnu er jafnan skipt í tvennt, þ.e. grunnþol og sérhæftþol. Eins og orðið bendir til er grunnþol grunnur fyrir sérhæft þol og forsenda þess að geta leikið knattspyrnuleik og staðist allar þær kröfur sem hann gerir, allt til enda, Sérhæft þol byggir á grunnþoli og er nauðsynlegt til að geta gert ýmsa þá hluti sem aðeins koma fyrir í knattspyrnu s.s. spretti,tæklingar,skor,skallaeinvígi o.s.frv.

Í næstu viku ætlum við að keira upp úthald manna til að vera tilbúnir 4. maí. Það gerum við með því að hver og einn fari út að hlaupa. 

Mánudagur 20. apríl. 8.km létt skokk (20 hringir á Ásvöllum)

þriðjudagur 21. apríl  UB upp brekku með sprettum vaxandi

miðvikudagur 22. apríl SK (skokk) 5.km

Fimmtudagur 23. april Göngutúr

föstudagur 24.  apríl Hraðaleikur 4-8 km

Teygja vel á eftir vera í hlaupaskóm og ef þið hafið tíma að leik sér í fótbolta.

LS (Létt skokk)
Hægur hraði en þó aðeins hraðari en venjulegur gönguhraði.

UB (upp brekku)
Hérna þarftu að finna svæði með smá brekku sem þú ert um 10-20 sekúndur að spretta upp. Hvíldin felst í því að ganga niður.

S (sprettir)
Stuttir sprettir auka þolið til muna. Finndu beina braut og sprettu í 15 sekúndur, hvíldu eins og þú þarft á milli spretta.

SK (skokk)
Hérna erum við komin á nokkuð léttan og góðan skokk hraða. Ef við miðum hraðann við kílómetra þá erum við að tala um 5-6,5 kílómetra hraða.

G (göngutúr)
Rösklegur göngutúr, endilega finndu þér reglulega nýtt svæði til að upplifa.

  • Fartlek = hraðaleikur þar sem sprettir koma inn í hlaupið (ath. aldrei ၠfullu) eru mislangir (t.d 150- 300 m) með mislöngum hvildum.
  • Þú skalt skrifa hja þér hversu langt þu hljópst og athugasemdir um hvernig þer leið.

  • Gangi þer vel !!

 


Fyrirlestur á föstudag- Efnilegur leikmaður

Það verður fyrirlestur á föstudag á Zoom.us kl 17:00 tölurnar til að komast inn verða byrtar á blogginu 16.55


Tölurnar fyrir fundinn

Meeting ið 74571239797

pw 4JPJ4e

passa stóra stafi.

kv Freyr


Góðar fréttir - fyrirlestur miðvikudag kl 17:00

Það voru góðar fréttir í dag að leyfilegt verður að byrja æfingar 4. maí þangað til verðum við að vera duglegir að hreyfa okkur skokka og leika sér með bolta.

Á morgun miðvikudag verður fyrirlestur á Zoom.us kl 17:00 ég set tölurnar inn á bloggið 16:55 svo þið getið tengt ykkur inn.

kv Freyr


Tækniæfing fyrir miðvikudag

Upphitun: 10 mín

Æfing 1.

Hreyfiteygjur

Skokkað frá endalínu að vítateig.

Hælar í rass,hnélyftur,snúa höndum,valhopp,krossa fætur,hliðarskref,varnarskref..... 

Æfing 2.   10 mín

Fyrirbyggjandi æfingar.

Vera fyrir framan línu á vellinum.

Hoppa yfir línuna og gera 10 x:

-Jafnfættis og lenda á öðrum fæti

-hliðar á hægri

-hliðar á vinstri

-framstig

-hliðarstig

-hnébeygja

 

Æfing 3: 15 mín

Rekja boltan og snúa sér í hálfhring og taka boltann utanfótar

og taka hraðabreytingu.

-allveg eins en núna taka boltann innanfótar í snúningnum.

-taka gabbhreyfingu til vinstri en taka boltann til hægri

-taka gabbhreyfingu til hægri en taka boltann til vinstri

-rekja boltann og stoppa (sekúndubrot) og síðan hratt áfram

-rekja boltann og stoppa og fara til hliðar

-rekja boltann gera uppáhalsgabbhreyfingu og hratt áfram.

Æfing 4.

Sendingar 25 metrar á milli

- háar sendingar

-vanda móttöku á boltanum

-nokkur skot á mark

Niðurlag:

Teygja vel og ræða saman um æfinguna en virða tveggja metra regluna.

kv Freyr,Einar og Viktor


Sóknarleikur

                                                 

Um leið og liðið nær valdi á knettinum, verða allir leikmenn að byrja strax á því að skipuleggja sóknarleikinn.  Knatthafi á þriggja kosta völ.

  1. Að senda knöttinn.    knattrakning.     3.  skot á mark.

1.Að senda knöttinn.

Knatthafi á að leggja áherslu á að senda knöttinn fram á við, framhjá einum mótherja og helst framhjá tveimur. Erfitt er að fullyrða að ein sending sé góð eða slæm. Það fer mikið eftir því hvar á vellinum sendingin á sér stað. Sending á varnarsvæðinu verða að vera 100%. Í námunda við mark andstæðinganna verður að taka áhættu og senda inn á lítil auð svæði. Að ná 25% árangi í sendingum á sóknarsvæðinu er talin góður árangur.

Fjögur mikilvæg atriði um sendingar.

  1. Nákvæmi Tímasettning    c. Hraði    d. Yfirskyn
  2. a) Nákvæmni

Flestir leikmenn geta sent knöttinn u.þ.b. 25 m af nákvæmi ef þeir fá að senda hann óáreittir. Gamanið kárnar um leið og mótherjar skerast í leikinn og allir leikmenn eru á hreyfingu. Ef leikmaður á í erfiðleikum með að senda knöttinn, nákvæmlega u.þ.b 25 m óáreittur, þarf hann ekki að reikna með því að ná góðum árangri þegar út í leikinn er komið. Þess vegna verða leikmenn að leggja hart að sér til að bæta sendingar sínar.

  1. b) Tímasettning

Til að nýta rétta andartakið verður knatthafi að geta metið afstöðu samherja og mótherja.

  1. c) Hraði

Það er mikilvægt að hraði á knettinum sé réttur en ekki of mikill. Þá tekur lengri tíma að taka á móti knettinum og ekki má senda of laust því þá er hætta á að einhver komist á milli.

  1. d) Yfirskyn

 Í nútíma knattspyrnu er gæslan alltaf að verða stífari og stífari. Þess vegna er nauðsynlegt að leikmenn geti framkvæmt gabbhreyfingar til að villa um fyrir mótherjunum og skapað auð svæði og tækifæri til að senda knöttinn frá sér.

  1. Knattrakning

Margir leikmenn minnka hraðann í leiknum með óþarfa knattrakningu. Lið nær meiri hraða með því að láta knöttinn ganga hratt á milli sín. Sérstaklega á að nota sendingar á miðdvæðinu. Oft er nauðsynlegt að rekja knöttinn sérstaklega inn á sóknarsvæðinu. Þegar knöttur er rakinn er nauðsynlegt að hafa tvennt í huga.

  1. að rekja knöttinn hratt að mótherja
  2. Að leika knetti framhjá andstæðingi

 

  1. Skot að marki

Þegar sóknarleikmenn eru um það bil 18-22 m frá marki eiga þeir þessara kosta völ

  • Stutt sending
  • Knattrak
  • Skot

Þegar margir eru í teignum gefur það oft betri árangur að skjóta að marki en að reyna sendingu eða knattrakningu.

 

Sóknarleikur án knattar

  1. Í fyrsta lagi þarf að draga varnarleikmanninn burtu úr góðri varnarstöðu með því að skapa mikla breidd í sóknarleiknum. Þeim mun erfiðara verður fyrir varnarleikmennina að valda hver annan.

 

  • Varnarleikmenn reyna að standa þannig að vígi að þeir valdi hvern annan upp. Svar sóknarleikmannanna við því er að hlaupa á milli varnarleikmannanna og draga þannig þann sem völdunina annast, burt.

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband